15.06.2006 21:19:04 / olafurg

Fluttur

Ef einhver er ennþá að skoða þessa síðu þá er sá hinn sami væntanlega alveg að gefast upp á því. Skiljanlega. En ef til vill gerist eitthvað á nýju síðunni minni, http://www.internet.is/oligu.

Ég er semsagt fluttur þangað. Endilega kíkja... og setja í favorites.

Ble


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 23:18:35 / olafurg

iTónlist

Þegar menn ætla að bera sig að því að kaupa sér tónlist á netinu, hvert á maður að fara? Ekki er hægt að kaupa í gegnum iTunes þar sem skráningin þar býður ekki upp á að vera Íslendingur. Undarlegt finnst mér þar sem Apple hefur í gegnum tíðina alltaf stutt vel og dyggilega við okkar tungumál, tölvur þeirra hafa verið á íslensku og hafa þeir montað sig vel af því. Ég ætlaði svo að kaupa mér nýjustu plötu Placebo, Meds, og reyna í leiðinni að vera úber löglegur og skoða svona hvernig internetmúsíkbransinn virkaði, en allt kom fyrir ekki - nema ég væri t.d. Dani eða Íri. Ekki er heldur hægt að nota Tónlist.is þar sem þar eru bara íslenskir flytjendur í boði.

Því spyr ég ykkur sem hafið vit á því: Hvar er best að kaupa tónlist á netinu?


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 00:39:20 / olafurg

Þetta er ekki comeback

Ég held að ég sé hættur að drekka bjór. Allavega þegar ég er að fara að skemmta mér mikið. Eða allavega svona minnka það eitthvað. Ég er búinn að vera að velta þessu fyrir mér í svolítinn tíma núna og hef verið að reyna að safna kjarki í að stíga skrefið. Ég gerði svo ráðstafanir fyrir nokkru þegar ég fór í gegnum Flugstöð Leifs heitins Eiríkssonar og undirbjó þetta. Steig ég svo skrefið til fulls síðastliðinn laugardag. Ég er alveg búinn að sjá þetta. Það sem maður á að drekka er ekkert annað en Gin og tóník. Eins og tvíhöfði – en eins og menn muna þá var það opinberi drykkurinn þeirra félaga.

Við Helgi bróðir tókum síðasta laugardag í að tækla þennan drykk. Skárum niður sítrónu, tókum fram klakann, upp með tóníkið og flösku af Tanguaray eðal gini frá London. Og þvílík dýrð. Þetta var ég alveg að fíla. Það tekur svona eitt til tvö glös að venjast beiskleikanum en svo er no turning back. Þetta er eins og besti svaladrykkur og heldur manni í heljargreipum. Ég held að ég sé búinn að finna minn drykk.

En þeir sem nenna ennþá að kíkja á þessa síðu (ekki verið uppfærð síðan 10. desember 2005 - já, tvöþúsundogfimm) taka eflaust eftir því að hún hefur breytt um lit og félagi minn Tony Montana ljær okkur félagsskap sinn. Ekki slæmur skapur það. Skil ykkur eftir með lífsboðskap að hætti Scarface:

"I neva fucked anybody over in my life, who didn't have it comin' to 'im, you got that? All I have in this world is my balls, and my word, and I don't break 'em for no one, jou understand?"

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 10:22:33 / olafurg

I forgot to tell you - BOM means 'Fuck you' in Polish!!

Ég var að muna eftir því núna áðan þegar ég hagaði einu atriði varðandi mín símtöl þegar ég var krakki. Maður var nátturlega öðru hverju að hringja í félagana til að tékka hvort þeir væru til í að koma út að leika og ég var þannig að ég hringdi alltaf út - þ.e. þar til pípið hraðaðist og hætti svo. Ég varð að vera aaalveg viss um að enginn væri nú heima. Síminn hefur örugglega alltaf hringt í svona mínútu eða tvær þar til þetta kom og mig minnir að ég hafi verið búinn að telja að það væru 13 hringingar Ég man líka að þessi ávani minn fór mikið í taugarnar á Helga bróður þegar við vorum að flýta okkur út til að fara t.d. í fótbolta og ég var að hringja í Jakob til að fá hann með eða eitthvað. Þá var það bara þó nokkur process að 'tékka örsnöggt hvort hann væri heima' og Helgi er nátturlega ekki sá þolinmóðasti. En ég er nú sem betur fer hættur þessari vitleysu núna, datt þetta bara í hug áðan þegar ég gleymdi mér eitthvað í tölvunni með símann á eyranu og svo allt í einu eftir heillangan tíma hætti helvítið að hringja. Það var enginn við.

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 20:33:59 / olafurg

I'm gonna need a light - if you touch me again I kill ya!

Yeeeahhh. Rosalega er maður sáttur í dag. Búinn í prófunum, og ekki bara á þessari önn, heldur fyrir seinasta þrjú og hálfa árið takk fyrir. Síðasta prófið í þessu námi mínu var í dag og er þá bara lokaverkefnið eftir sem er reyndar svolítið þéttur pakki og verður í gangi alveg fram yfir áramót. Skýrsla hér og skýrsla þar, vörn hér og vörn þar. En það hættir allt 7. janúar. Þá verð ég örugglega eins og belja á vorin.

Í tilefni af þessum degi fór ég í búð og keypti heilan kassa af klementínum og er langt kominn með hann. Nú er farin að koma smá jólastemming í mann. Ég er einn af þeim sem er algjörlega á móti jólunum þangað til kominn er í fyrsta lagi 1. des. Hitt er bara bull og búið til af verslununum sem eru að reyna að lengja seasonið hjá sér. Skiljanlegt svosem. En þeir sem eru að fara að hugsa til þess að senda mér jólakort verða að hinkra aðeins með það þar sem ekki er ennþá kominn póstkassi hingað til okkar hjúa í Álfkonuhvarfið. Græt það svosem ekki þar sem nú er jólaauglýsingahelvítisbæklingaflóðið í algjöru hámarki að reyna að troða upp á mann alls konar vitleysu. Ekki er þetta svona fyrir vestan. Nei, þar er bara róleg og heimilisleg jólastemming. Alvöru.

Trausti og Jakob. Félagsskiptaglugginn er opinn eitthvað framyfir áramót, minnir að það sé eitthvað um 4. jan. Formlegar umsóknir í Brokeyna eru alltaf velkomnar. Þið mynduð nú eflaust styrkja liðið og koma með smá hlýleika (hár) og hressleika (ofvirkni) í pakkann. hehe, gaman að því. Trausti, það þýðir ekkert að vera í einhverju Breiðablik rugli, Brokey er málið, www.blog.central.is/brokeybasket. Ókey. Og Jakob, Gerður er búin að finna íbúð fyrir þig - nokkrar reyndar - þú verður í sambandi. En fyrir þá sem ekki vita þá er Gerður snillingur í að finna íbúðir á góðum díl, lág söluþóknun.

Gleðilegan G riðil
Bakó

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 10:40:14 / olafurg

Stjórnmálaþurs??

Ég tók prófið og hér er niðurstaðan:
______________________
Stjórnmálaþurs

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.

Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.
_________________
Mér finnst nú eins og þetta passi ekki allt saman, en það er bara ég.

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 17:42:05 / olafurg

Þessi er kúl á því

Fékk geðveikan brandara sendan núna áðan. Þessi er brilliant og varð að fá að komast að.

One Saturday afternoon, I was sitting in my lawn chair, drinking beer and watching my wife mow the lawn.
The neighbor lady from across the street was so outraged at this that she came over and shouted at me, "You should be hung!"
I took a drink from my can of Budweiser, wiped the cold foam from my lips, lifted my darkened Ray Ban Sunglasses and stared directly at this nosey neighbor and then calmly replied, "I am, that's why she cuts the grass."

Alveg magnað.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 16:26:48 / olafurg

Um tap og tvö bil

Alveg er ég hissa á teljaranum hérna. Maður skrifar ekki í fleiri vikur en samt þraukar fólkið við og kíkir á hverjum degi, vonar að hann Óli sinn sé búinn að skrifa eitthvað í dag. Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum, óhætt að segja það held ég. Ég kíkti áðan og sá að það voru 7 manns búnir að tékka sig inn og varð bara að gera eitthvað í málunum. Mikið búið að gerast undanfarna daga þannig. Byrjaði á fimmtudaginn að fara í skírn hjá systursyni mínum og fékk hann nafnið Hafliði. Hann er sko alveg þvílíkt myndarlegur drengur (alveg eins og ég banananana, woo-ó (bubbi)). Sonur hennar Ebbu systur og Hafþórs kallsins hennar. Svo um helgina var ekkert nema tap tap tap. Fyrst var það laugardagurinn þar sem Liverpool menn fóru inn á völlinn með hausinn uppi í rassgatinu og spiluðu eftir því. Svo var að sjálfsögðu leikur með Brokey á sunnudaginn í Austurbergi þar sem við áttumst við Breiðablik B. Fyrir leikinn vorum við í efsta sæti okkar riðils eftir einn leik og ætluðum okkur sko ekki að tapa því niður. En eftir að hafa verið yfir í hálfleik og verið með leikinn frekar okkar megin misstum við dampinn lítillega í seinni hálfleik og hleyptum þeim fram úr okkur. Þeir náðu forystu sem þeir létu aldrei af hendi og við töpuðum með 7 stigum, man ekki samt hvernig tölurnar voru. Við vorum nátturlega ekki sáttir með það en lítið við því að gera. Það sem ég var hins vegar mest í vonbrigðum með var að Trausti Jó var ekki með í leiknum, ég hefði viljað fá að taka á honum aðeins, en Trausti, þú verður fyrr eða síðar að láta sjá þig þó þú sért nú ekki í B liðinu en við verðum að fá að takast aðeins á í þessum pakka, upp á old times.

En svo langaði mig að fá komment á eitt atriði sem ég hef verið mikið að spá í undanfarið. Þetta hefur verið mér mjög svo hugleikið frá því að ég byrjaði að fikta í tölvum og ritgerðarveseni í grunnskóla og ég talaði við Jakob um þetta mál í 50 mínútur í símann í gærkvöldi. Eins gott að hann er vinur minn.
Þetta snýst um það hvort maður eigi að gera eitt eða tvö bil á eftir punkti. Ég hef alltaf verið harður á því að það eigi að gera tvö bil, enda þykir mér mjög þægilegt að lesa þannig texta, maður klárar eina setningu, sér punkt og nokkuð gott bil og hugsar, "ahh nú kemur ný setning, anda djúpt og byrja svo", og hefst handa við hina nýju setningu. Ef ég hef gert eitt bil þá hefur mér finnst eins og það hvetji til þess vandamáls sem lýsir sér þannig að maður klárar setninguna og áður en nokkur veit þá er byrjað að vaða inn í þá næstu án nokkurs fyrirvara. Þetta getur nátturlega verið afskaplega þreytandi og er nokkuð algengt sérstaklega þegar fólk er að byrja að lesa. Þarna sá ég tvö bil koma sterk inn. En svo benti mér einhver á að tvö bil hafi verið venjan hér fyrir langalöngu síðan á tímum ritvélanna og hafi aflagst um leið og tölvurnar komu til. Það getur vel verið svo, en þá hefur steingleymst að láta mig vita af því, djöfullinn hafi það, og ég hef alla tíð skrifað tvö bil. Ég er reyndar aðeins að gefa eftir með þetta og eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir þá er ég búinn að skrifa þennan texta hér með einungis einu bili. (Anda og ný setning) Hins vegar var það mjög erfitt að venja sig á það. Ég held því samt fram að það eigi að vera tvö bil þó ég geri það ekki tímabundið, en það er bara útaf hópþrýsting. Koma svo, segið mér hvað þið gerið, styðjið mig í þessu.

» 11 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 13:10:07 / olafurg

Flugferð

Í dag er ég að fara í flugferð. Já, hananú kæru vinir, hann Vilberg vinur minn ætlar að lata verða af því að fara með mig að fljúga um himininn bláa og sýna mér hvað hann er fær á slíkum tækjum en hann er alræmdur ofurflugmaður og vita allir sem eru menn með mönnum í flugbransanum að hann er maðurinn. Líklegast kíkjum við líka í kaffi í Hólminn til gömlu hjónanna og litla bróður þar sem það er nú ekki lengi verið að renna það á rellunni. Á loft í Reykjavík, út að akranesi, inn yfir mýrar, í átt að Ljósufjöllum, snúning yfir eyjunum og búmm, lending í sælunni. Þetta verður brilliant. Og meðan ég man langar mig að gefa ykkur eina frægðarsögu af Flugmanninum í dag. Það var þannig eitt sinn að þjóðhátíð var í Vestmannaeyjum eins og svo margir kannast við. Þá var Vilberg nátturlega á fullu að ferja fólk í partýið og var komið kvöld og brekkusöngurinn að byrja. Og í einu aðfluginu þá tekur hann sig til og tekur lágflugið aftan að brekkunni og birtist svo á trilljón hraða nokkrum metrum yfir crowdinu og svífur yfir við mikil fagnaðarlæti viðstaddra. Já, þetta hefur örugglega verið stemming, blindfullur í brekkunni og fá flugvél í andlitið, gaman ef einhver sem les hefur verið í brekkunni þegar þetta gerðist. Veit nú ekki hvaða ár það var nákvæmlega, enda skiptir það ekki öllu. Við leggjum af stað um 14:00 á flugvöllinn í Reykjavík og verðum komnir í kaffi og með því stuttu síðar, ef allt gengur að óskum. Spennandi að sjá hvort ég komi tilbaka.

Músík:
Lamb - What Sound / Between Darkness and Wonder (mjög gott stöff)
Mobb Deep - Scarface theme (lag, heavy töff)
Bill Withers - Best of (Nonni Mæju kynnti mér þennan, original snilld)
Placebo - Black Market Music

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 15:18:27 / olafurg

Brandarakallinn

 Einn djöfull hérna.

Akmed came to the United States from the Middle East, and he was only there a few months when he became very ill.  He went to doctor after doctor, but none of them could help him.  Finally, he went to an Arab doctor.

The doctor said, "Take dees bucket, go into de odder room, shit in de bucket, piss on de shit, and den put your head down over de bucket and breathe in de fumes for ten minutes."

Akmed took the bucket, went into the other room, shit in the bucket, pissed on the shit, bent over and breathed in the fumes for ten minutes.

Coming back to the doctor he said, "It worked.  I feel terrific!  What was it?"

The doctor said, "You were homesick."

Hehehe, þessi var góður var það ekki, svolítið nasty, en það er allt löglegt fyrir húmorinn. 

Núna er ég uppi í skóla að reyna að læra eins og venjulega.  Það gengur bara svona líka fínt hjá mér að ég gaf mér tíma til að líma inn þennan rosalega brandara hérna uppi, enda er Jakob búinn að liggja í mér að halda áfram með þetta.  Hann er líka búinn að klukka mig eins og ég held að ég hafi sagt frá, man það ekki, en ekki einu sinni, heldur tvisvar, þannig að ég þarf að koma með tvær tegundir af klukki á næstu dögum og þarf því að fara að kafa djúpt í sjálfan mig og finna þessar staðreyndir allar um mig.  Það hlýtur að vera bara gaman, ég er búinn að vera að reyna að finna eitthvað upp núna síðustu daga og er kominn með nokkra punkta.  Ég ætla að reyna að gefa upp eitthvað sem er spes, skrítið og jafnvel eitthvað sem myndi láta fólk kalla mig klikkaðan en það kemur í ljós.

Anyways, þá gengur það vonandi fyrr en síðar að klára það dæmi.  Stay tuned.

Orð dagsins:  "Betra er að fara á kostum en taugum."
(Heimild: Serðir monster)

P.S. Go Bulls!!   ...og Liverpool líka þó þið skíttöpuðuð um helgina.

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.10.2005 18:27:08 / olafurg

Liverpool 1 - 0 Chelsea á sunnudag, sanniði til

Er að vinna í klukkinu mínu, það er víst komið að mér að upplýsa einhverja vitleysu um mig. Spennandi að sjá hvað það verður. En in the mean time ætla ég að henda einum durgans brandara (yeah yeah, Jakob a.k.a. Herra kúlulega, ég nenni ekki að blaðra núna) og svo kem ég með punktana fyrir ykkur næst. Lofa því. Hér kemu hann, þessi er æði:

Gömul hjón eru í mat hjá kunningja fólki sínu.
Eftir matinn fara konurnar inn í eldhús að spjalla en karlarnir sitja áfram
í stofunni.
Við fórum á frábæran veitingastað í gærkvöld sem þið verðið að prófa," segir annar þeirra allt í einu.
Og hvað heitir hann?" spyr hinn.
Hann verður hugsi smá stund og getur bara ekki munað nafnið á
veitingastaðnum. Loks segir hann: "Æj, hvað heita aftur blómin þarna..."
Túlipanar?" spyr hinn.
Nei," segir hann, "maður gefur þau oft þeim sem maður elskar."
Rósir?"
Hmmm," hugsar hann, "nei, ekki það. Er ekki eitthvað annað blóm sem maður gefur stundum þeim sem maður elskar?
"Jú," segir hinn, "Liljur".
Akkúrat, það var það. Takk," segir hann og snýr sér í átt að eldhúsinu:
"Lilja mín, hvað hét aftur veitingastaðurinn sem við fórum á í gær?"


P.S. Tengill á Jakob er kominn hér til vinstri, mikill fróðleikur kemur þarna fram, mæli með þessu.


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.09.2005 22:15:30 / olafurg

What's this liiiiiife fooooor? Uppáhaldið hans Bjartmars

Ég varð að henda inn einum stuttum brandara sem ég var að lesa í brandarasafninu sem ég hef í tölvunni.  Mér finnst hann helvíti góður, en vil láta koma fram að skoðanir sem koma fram í þessum brandara eru alfarið á ábyrgð þess sem samdi hann og þurfa ekki að endurspegla mínar skoðanir eða blog.central manna.  En here it goes og takk fyrir bless ;)

I got a phone call from a gorgeous ex-girlfriend of mine the other day. We lost track of time, chatting about the wild nights we used to enjoy together. I couldn't believe it when she asked if I'd like to meet up and maybe rekindle a little of that magic. "Wow!", I said, "I don't know if I could keep pace with you now! I'm a bit older and a bit balder than when you last saw me!" She giggled and said she was sure I'd meet the challenge! "Yeah", I said, "just so long as you don't mind a man with a waistband that's a few inches wider these days!" She laughed and told me
to stop being so silly! She teased me, saying that she thought tubby bald men were cute! "Anyway", "I've put on a couple of pounds myself!" she giggled.....so I told her to fuck off.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 09:39:53 / olafurg

Þreytti maðurinn

Ég verð nú að viðurkenna að ég vorkenni greyið kallinum honum Stephane Henchoz svolítið. Ég var að lesa grein í morgun á Fótbolti.net þar sem hann er að að segja að hann sjái ennþá eftir að hafa þurft að fara frá Liverpool og hvað hann sé sár yfir því að hafa verið skipt út fyrir Mauricio Pellegrino. Hann sagði:

" Rétt áður en ég fór frá Liverpool fengu þeir Pellegrino. Og kannski eftir 10 daga æfingar með honum þá byrjaði ég að spyrja spurninga. Ég hugsaði bara; er ég virkilega svo slæmur að þeir vilja að ég fari og þeir vilji hann??
Ég tel að ég hafi haft á réttu að standa því ég sá Pellegrino spila fyrir Liverpool og ég hugsaði, já, ég hefði getað skilað því starfi sem hann gerði fyrir þá, að minnsta kosti."

Já, Henchoz kallinn átti nú mörg góð ár hjá Liverpool og ég efast ekki um að hann hefði getað staðið sig mun betur en Pelle kallinn. Ég vona að hann nái nú að standa sig hjá Wigan.

En körfuleikurinn í gær fór vel. Við náðum að sigra fyrsta leikinn á tímabilinu, þar sem við tókum Leikni R. með fjórum stigum. Laugi Jónasar fór hamförum í 4. leikhluta þar sem hann kláraði leikinn nánast á eigin spýtur auk þess sem Murasan átti gott víti (klúðraði reyndar hinu). Leikurinn var búinn að vera í járnum þangað til í 3. hl. þar sem við enduðum 10 stigum undir. En LJ tók flugið og endaði með þristi til að komast stigi yfir um 30 sek fyrir leikslok og halaði svo inn villu í restina og sökkti vítunum.
Þessi niðurstaða gefur okkur séns á að taka dolluna í okkar riðli því Valur B og KR B eru ekki gildir limir í þessa keppni. Þurfum þá bara að sigra Hrönn á næstu helgi og þá náum við því.  Það hlítur að vera hægt.

ÓG

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2005 18:10:54 / olafurg

Vísindaferð í gær og leikur á morgun

Núna er maður að koma sér aftur saman eftir hörkugóða vísindaferð í gærkveldi upp í Orkuveitu Reykjavíkur.  Ég fór þarna með bekkjarfélögunum mínum úr IT, eða strákunum allavega, stelpurnar eru nú farnar að slappast mikið í þessum ferðum öllum, allar komnar á kaf í alvöru lífsins, karlmenn eða börn eða sitt lítið af hvoru.  En allavega.  Ferðin byrjaði á því að ég og Gulli Magg nýuppdressaði mættum upp í skóla í fordrykk og útgerðarstjórinn sótti okkur svo um hálf fimm og gaf okkur far upp í Orkuveituhúsið.  Þar fengum við einhvern smá fyrirlestur hjá konunni sem tók á móti okkur áður en við fórum upp á efstu hæðina að skoða skrifstofurnar og svo endaði túrinn á því að við fengum þessar fínu snittur og með því.  Rauðvín, hvítvín og þessi fíni Tuborg.  Við átum og drukkum þar í góða stund áður en við fórum svo með rútu niður á Ara í Ögri þar sem meiri bjór var í boði.  Gulli klikkaði reyndar illilega á því, hann skrópaði í rútuna sem keyrði niðrí bæ og skildi okkur hina eftir á leið í óvissuna.  Andskotans vitleysa.  Við látum hann heyra það á mánudaginn, þetta fór alveg með kvöldið.

En það er eitt atriði á Ara í Ögri sem er alveg nauðsynlegt að laga.  Klósettin þar eru alveg fáránlega lítil.  Í öðrum endanum á salnum er eitt (þá meina ég 1) klósett og í hinum er annað venjulegt klósett og 2 pissuskálar sem er komið fyrir á svona 3 fermetrum.  Þar af leiðandi tengjast menn þar inni hálf óþægilega mikið þegar þeir tæma af tankinum.

Eftir gott kvöld hitti ég svo á Gerði sem var að skemmta sér með frænkum sínum og við fengum far heim með Axel sem kom til að sækja Evu.  Sofnaði svo í stólnum hans Kalla inni í stofu og vaknaði við það að ég hafði hellt úr Egils Kristals glasinu sem ég var með í höndinni og var orðinn pínu blautur.  Helltist meira að segja smávegis í stólinn en það sést voða lítið held ég ;-/.

Á morgun er svo risa leikur í enska boltanum þar sem mínir menn í Liverpool mæta ManUtd.  Við vonum nátturlega það besta í þeim leik, við erum á heimavelli þannig að kannski gefur það okkur eitthvað auka boost.  Hann byrjar klukkan 11:00 og svo eftir hádegi, held klukkan 15:00 er leikur með Brokey Basket Club í Hagaskóla þar sem við tökum á móti Leikni í Reykjavíkurmótinu.  Við erum búnir að tapa tveim leikjum og það er alveg kominn tími á sigur í þessu móti.  Við viljum nú ekki enda neðstir í okkar riðli, þó við æfum ekkert.  Ég hvet alla til að mæta í gulu í stúkurnar og hvetja okkur til sigurs.  Bjartmar verður búinn að semja hvatningarsöngva og dreifir textum til áhorfenda svo allir geti tekið undir.  Upphitun byrjar kl. 14:50.  Ég er orðinn eitthvað dofinn í hausnum núna og mig grunar að þetta sé ekkert spennandi lestur (til hamingju þeir sem hafa lesið alla leið) þannig að ég ætla að setja punkt hér (.) og gera eitthvað annað.

Óli


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 14:26:05 / olafurg

Úrslit

Úrslitin úr könuninni koma hér, en eins og menn muna var spurningin svohljóðandi: Leikurinn á morgun, Tottenham - Liverpool?

    Einn:       20%
    Ex:          0%
    Tveir:      20%
    Ég held með Arsenal:    60%
    Leikurinn er búinn:        0% 

Eins og sést greinilega eru Arsenal menn að rústa þessari könnun.  Sem er nokkuð magnað því þeir töpuðu sínum leik um helgina.  Ég græt það nú ekki.

Kv. Óli

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2